Óperan 27
Í hjarta Parísar verður lítil stofa að suðupotti nýrrar listar. Óperan 27 segir hrífandi ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, tveggja kvenna sem sköpuðu heimili, samfélag og skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Þar hittast Picasso, Matisse og Hemingway áður en heimurinn þekkir nöfn þeirra – og innan veggjanna takast á ástríða, metnaður, vinátta og hugmyndir sem eiga eftir að breyta listasögunni.
Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek flétta saman tónlist, húmor og hjartnæma sögusýn í aðgengilegri samtímaóperu um ástina sem lifir af stríð, átök og tímans þunga nið.
Miðasala er hafin á heimasíðu Borgarleikhússins.
27 er styrkt af Sviðslistasjóði og Tónlistarsjóði.
Flytjendur
- Íris Björk Gunnarsdóttir – Gertrude Stein
- Herdís Anna Jónasdóttir – Alice B. Toklas
- Eggert Reginn Kjartansson – Pablo Picasso o.fl.
- Áslákur Ingvarsson – Leo Stein o.fl.
- Bjarni Thor Kristinsson – Ernest Hemingway o.fl.
Listrænir stjórnendur
- Bjarni Snæbjörnsson – Leikstjóri
- Matthildur Anna Gísladóttir – Tónlistarstjóri
- Friðþjófur Þorsteinsson – Leikmynda- og ljósahönnuður
- Andri Unnarson – Búningahönnuður
- Cameron Corbett – Sviðshreyfingar
- Ray Milano – Leikgervi
- Íris Björk Gunnarsdóttir – Framleiðandi
Myndefni
- Rakel Tómasdóttir - Hönnuður
- Dóra Dúna - Ljósmyndun
- Unnur Agnes Níelsdóttir - Myndbandsgerð
